30.1.2009 | 16:18
Sálfræðingurinn Geir H. Haarde tjáir sig um kreppuna!
Hatur er sálfræðileg skýring ekki efnahagsleg! Það er víðar en á Íslandi rætt um óstjórn og stjórnleysi stjórnvalda og siðleysi fjármálastofnana. Hér í Bandaríkjunum er þetta efst á baugi efnahagsumræðunnar þessa stundina. Rætt er um aðgerðaleysi Bush stjórnarinnar og siðleysi fjármálamanna á Wallstreet. Það þarf ekki hatur til að sjá að nauðsynlegt sé að láta einstaklinga sæta ábyrgð sem sannanlega bera hana en það er ekki nóg! Það þarf að taka á rót vandans sem er það regluverk og eftirlitsapparat sem þarf að vera til staðar svo svona kerfishrun verði ekki aftur og með sama heiftarlega hætti.
Geir: Stjórnuðust af hatri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sammála kv gb
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 16:28
Sæll félagi og þakka kommentið
Hermann Óskarsson, 30.1.2009 kl. 17:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.