19.1.2009 | 19:02
Aðvörun Davíðs
Hvers vegna brást ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar EKKI við aðvörun Davíðs Oddsonar seðlabankastjóra 30. mars 2007? Það væri við hæfi að núverandi og þáverandi forsætisráðherra Geir Haarde svaraði því! Davíð varaði við greiðslu yfirverðs fyrir „vænlega“ fjárfestingarkosti og bókfærslu VIÐSKIPTAVILDAR í bókhaldi fyrirtækja en viðskiptavildin var notuð til að auka veðsetningargildi fyrirtækja og fjárfestinga með vitund og vilja stjórnvalda. Ráðamenn þjóðarinnar töluðu þetta huglæga fyrirbæri upp eins og þeir gátu og stuðluðu þannig að kerfishruninu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.